Kanelsnúðar
- 100-150 gr. smjör eða smjörlíki
- 5 dl mjólk
- 50 gr. ger
- 1-1,5 dl sykur
- 1/2 tsk. salt
- 2 tsk. kardimommudropar
- 16-17 dl hveiti
- 50 gr. smjörlíki eða smjörvi
- 1 dl sykur
- 1 msk kanell
Ofaná:
- hrært egg
- perlusykur eða hakkaðar möndlur
Bræðið smjörið, bætið útí mjólk og hitið í 37°C. Myljið gerið í stóra skál og hellið vökvanum yfir og hærið þar til gerið er uppleyst.
Blandið þurrefnunum útí en skiljið eftir smá hveiti til að hnoða með. Látið hefast undir dúk í ca. 40.mín.
Hnoðið deigið og skiptið því í tvennt, fletjið út hvort stykki um sig í 2 aflangar kökur. Smyrjið smjörinu á, stráið yfir sykri og kanel, rúllið upp.
Skerið hverja rúllu í 24 bita, látið í pappírsform á bökunarplötu og dúk yfir. Látið hefast í 30-40.mín, penslið með eggi og stráið perlusykri eða möndlum yfir.
Bakist í miðjum ofni við 250°C í 6-8 mín.
Látið kólna undir dúk á bökunarrist.
Vöfflur
- 2 bl súrmjólk
- 2 bl mjólk
- 4-6 egg
- 2 tsk salt
- 2 msk sykur
- 1 tsk matarsódi
- 2 tsk lyftiduft
- 5 bl hveiti
- 200 gr smjörlíki brætt
- vanilludropar ef til vill
ef nota á við fínni tilefnier gott að aðskilja eggin og stíf- þeyta eggjahvítunar
Frönsk súkkulaðikaka
- 2 dl sykur og 4 egg þeytt veeeel saman
- 200 gr súkkulaði og 200 gr smjög brætt
- hveiti 2 og 1/2 dl
- lyftiduft 1 tsk
Súkkulaði blandað varlega saman við eggjahræruna. Hveiti og lyftidufti bætt út í. Bakað í 15-18 (ég baka hana aldrei í meira en 15 þá er hún blaut og geggjuð) mín í 25 cm formi með lausum botni eða í eldföstu formi við 225 gráður í 15-18 mín. Á að falla í miðju. Fersk jarðaber sett í holuna. Langbest að hafa vanilluís með:) Hún klikkar ekki þessi:) Hún er mátuleg sem eftirréttur fyrir 9 manns
Fljótlegt og gott.
Bleikar pönnukökur
- 4 dl hveiti
- 2 msk sykur
- 1/2 tsk salt
- 1/2 tsk lyftiduft
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 50 gr brætt smjörlíki
- mjólk eftir þörfum
- rauður matarlitur
1.setjið þurrefni saman í skál og dálítið af mjólk út í
2.bætið eggjum og vanilludropum í skálina
3.bráðnu smjörlíki helt út í
4.hrærið og þynnið með mjólk.a.t.h að deigið á að vera þunt og laust við kekki
5.bætið matarlit út í
Rabbabara múffur
- 4 dl hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 dl sykur
- örlítið salt
- 1-2 tsk. engifer, malað (eftir smekk)
- 2 egg
- 3 msk. hrein jógúrt
- 1 dl olía, t.d. grænmetisolía, eða brætt smjör
- 1 ½ dl rabarbari, smátt skorinn
- 1 tsk. kanilduft
Blandið hveiti, lyftidufti, sykri, salti og engiferi saman. Hrærið vel saman í annarri skál eggjum, jógúrti og olíu. Blandið síðan saman við þurrefnin. Kanil er blandað saman við smátt saxaðan rabarabarann og ríflega helmingnum af honum er bætt út í deigið. Skiptið síðan deiginu í 12 múffuform og setjið afganginn af rabarbaranum ofan á. Bakið í 20 mínútur við 200 gráður. Látið múffurnar kólna áður en bornar fram.
Muffins
- mjög góðar súkkulaðimöffins125 grömm mjúkt smjör eða smjörvi
- 125 grömm sykur
- 2 egg
- 2 matskeiðar mjólk
- 100 grömm hveiti
- 1 teskeið lyftiduft
- 2 matskeiðar kakó
Hitið ofninn í 190 gráður. Þeytið saman smjör og sykur þar til það er létt og loftkennt. Bætið við eggjum og mjólk og að lokum skal sigta hveiti, kakó og lyftiduft út í. Þeytið þar til degið er orðið jafnt. Skiptið deiginu í pappírsformin og bakið í miðjum ofninum þar til kökurnar hafa hefast og eru stífar í miðjunni. Bökunartíminn fer eftir stærð fomanna, venjuleg stærð 12-15 mínútur. Minni formin 10-12 mínútur. Gott er að kæla kökurnar á rist og skreyta þær svo með kremi eða glassúr.
Baconhorn
- 100 gr. smjör
- 900 gr. hveiti
- 60 gr. sykur
- 1/2 tsk. salt
- 1/2 lítri mjólk
- 1 pakki þurrger (ötker)
- Fylling:
- 1 pakki baconostur
Penslun:.
Mjólk
Blandið saman hveiti, sykri og salti og myljið smjörið út í. Hitið mjólkina rétt volga ca. 28 gráður og leysið gerið upp í henni: Hellið mjólkinni saman við þurrefnin og hnoðið. Látið lyfta sér í 40 mín. Hnoðið aftur og látið lyfta sér í 30 mín. Skiptið deginu í fimmm hluta. Hvern hluta á að fletja út í hring og skipta í 8 hluta (alveg eins og gert er með pizzur) setja ca. 1/2 - 1 tsk af baconost á hvern hluta og rúlla upp í horn. Pensla með mjólk og. Bakist við 200 gráða hita þangað til hornin eru orðin ljósbrún.
Hafragrautur-1 skammtur
1 dl haframjöl
2-3 dl vatn
Haframjölið sett í pott ásamt vatni. Hitaður að suðu og látinn malla í smá stund. Sumir setja ögn af salti.
2-3 dl vatn
Haframjölið sett í pott ásamt vatni. Hitaður að suðu og látinn malla í smá stund. Sumir setja ögn af salti.
Amerískar pönnukökur
- 2 stk egg
- 2 bollar mjólk
- 2 msk matarolía
- 2½ bolli hveiti
- 4 msk sykur
- 4 tsk lyftiduft
- 1 tsk salt
AðferðBlandið saman eggjum, mjólk og olíu. Setjið svo þurrefnin saman við. Smá olía eða smjölíki sett á pönnuna og lítil ausa af deigi sett á. Bakað og snúið við þegar er orðið alsett loftbólum.
Borðað með miklu hlynsírópi.
Eplakaka
Uppskrift:
Hrærið vel saman smjör og sykur. Eggin látin úti og hrært vel. Þurrefnin látin síðast og hrært aðeins saman. Þetta er látið í smurt, eldfast mót. Marsipanið rifið gróft á rifjárni og dreift yfir. Eplin skorin í sneiðar og raðað fallega ofan á. Að síðustu er hnetuspænum dreift yfir. Bakað í ofni við 180˚C hita í u.þ.b. 20 mín.
Borið fram með þeyttum rjóma.
- 175 gr smjör (mjúkt)
- 2 dl sykur
- 2 egg
- 2 dl hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 3-4 epli
- 100 gr marsipan
- hnetuspænir
Hrærið vel saman smjör og sykur. Eggin látin úti og hrært vel. Þurrefnin látin síðast og hrært aðeins saman. Þetta er látið í smurt, eldfast mót. Marsipanið rifið gróft á rifjárni og dreift yfir. Eplin skorin í sneiðar og raðað fallega ofan á. Að síðustu er hnetuspænum dreift yfir. Bakað í ofni við 180˚C hita í u.þ.b. 20 mín.
Borið fram með þeyttum rjóma.
Litlar og góðar kókoskúlur
- 1 desilítri kókósmjöl
- 2 desilítrar haframjöl
- 3 desilítrar flórsykur
- 3 matskeiðar kakó
- 1 teskeið vanilludropar
- 2 matskeiðar vatn
- 100 grömm smjörlíki
Aðferð fyrir Kókóskúlur:
Allt hráefnið sett í skál og hnoðað saman. Búnar til litlar kúlur og kælt í ísskáp.
Hveitibollur
- 4 teskeiðar þurrger
- 5 desilítrar volgt vatn
- 1 ½ teskeið salt
- 100 grömm smjör
- 200 grömm heilhveiti
- 500 grömm hveiti
- Egg til penslunar
Aðferð fyrir Hveitibollur:
Bræðið smjöri og blandið því saman við 3 desilítra af vatni. Setjið heilhveiti, salt og ger í skál. Hrærið smjörvatninu saman við. Bætið hvíta hveitinu út í, smá saman. Hrærið og hnoðið. Smyrjið skál með matarolíu og setjið deigið í, lokið með plastfilum og látið deigið hefast í 20 mínútur. Hnoðið deigið upp og rúllið því í lengjur. Skerið í bita og mótið bollur. Leggið bollurnar á plötu, með bökunarpappír. Látið bollurnar hefast í 20 mínútur og penslið þær svo með eggi. Stillið ofninn á 200 gráður og bakið bollurnar í 15 mínútur.
Skúffukaka
Einföld og góð skúffukaka
Glassúr
- 150 g smjör
- 2 egg
- 3 dl sykur
- 2 tsk vanillusykur
- 2 msk kakó
- 4 dl hveiti
- 2 tsk lyftiduft
- 1 1/2 dl mjólk
Glassúr
- 75 g smjör
- 2 msk kaffi
- 2 msk kakó
- 2 tsk vanillusykur
- 3 1/2 dl flórsykur